Líf í borgarholtsskóla

Félags- og hugvísindabraut

Nám á félags- og hugvísindabraut veitir nemendum víðtæka almenna menntun og undirbýr þá fyrir háskólanám. Námið er skilgreint á þriðja hæfniþrepi og lýkur með stúdentsprófi. Áhersla er lögð á félagsvísindi, tungumál og hugvísindi. Námið hentar m.a. þeim sem hafa hug á að leggja stund á háskólanám á ofantöldum sviðum. Eins veitir námið ákjósanlegan undirbúning fyrir nám í menntavísindum, lögfræði og fleiri greinum sem krefjast færni í samskiptum. Nemendum gefst kostur á að styrkja grunn sinn í íslensku og erlendum tungumálum með því að velja þessar greinar á kjörsviði eða í vali.

Nýsköpunar- og frumkvöðlafræði liggur eins og rauður þráður í gegnum nám á félags- og hugvísindabraut. Nemendur kynnast hugmyndafræðinni frá ýmsum sjónarhornum í ólíkum námsáföngum jafnframt því sem útskriftarverkefni þeirra snýst að stórum hluta um nýsköpun.

Nemendur á félags- og hugvísindabraut sem eru á afreksíþróttabraut fara eftir brautarlýsingu á afreksíþróttasviði.

Grunnur (105 einingar)

* Í stað ENS3A05 má taka aðra enskuáfanga á þriðja þrepi: ENS3B05, ENS3C05, ENS3D05, EMS3E05.
** Nemendur geta valið milli eftirfarandi áfanga eftir að þeir hafa lokið LÍL1A01 og LÍL1B01: RÆK1A01 – ræktin, JÓG1A01 – jóga, KÖR1A01 – körfubolti, FÓT1A01 – fótbolti og  ÚTI1A01 – útivist. Velja má hvern þessara áfanga oftar en einu sinni og velja má fleiri en einn áfanga á önn.

Kjarni félags- og hugvísinda-brautar (35 einingar)

* Í stað ENS3A05 má taka aðra enskuáfanga á þriðja þrepi: ENS3B05, ENS3C05, ENS3D05, EMS3E05.

Bundið pakkaval (20 einingar)

Nemendur geta valið hvenær áfangar af kjörsviðum eru teknir.

Kjörsvið allra brauta (5 einingar)

Frjálst val: 10 einingar

Uppfært: 22/08/2024