Heilsu- og lífsstílsbraut - íþróttaakademía
Heilsu- og lífsstílsbraut hentar vel þeim sem hafa mikinn áhuga á íþróttum og heilsu og hafa í gegnum tíðina stundað hreyfingu sér til ánægju og heilsubótar. Nemendum gefst kostur á að auka hæfni sína og þekkingu á sviðinu ásamt því að hljóta góða og gagnlega almenna menntun til stúdentsprófs. Almennur kjarni er 99 einingar, þriðja mál (val um þýsku eða frönsku) 20 einingar og sérgreinar brautarinnar 86 einingar, alls 205 einingar. Sérgreinarnar í kjarna og kjörsviði samanstanda af fjölbreyttum fögum svo sem íþróttafræði, þjálffræði, íþróttasálfræði, líffæra- og lífeðlisfræði og næringarfræði. Í sérstökum HHH áföngum – Heilsa, hreyfing og hreysti – er blandað saman verklegum æfingum og faglegri umfjöllun um heilsu- og lífsstílstengd efni.
Almenn inntökuskilyrði á bóknámsbrautir til stúdentsprófs gilda fyrir nýju brautina. Hér má finna upplýsingar um inntökuskilyrðin.
Nemendur sem stunda skipulagðar keppnisíþróttir undir handleiðslu þjálfara geta sótt um að tengja nám sitt íþróttaakademíu skólans. Þau sækja um akademíuna hér.
Brautin er kjörin fyrir þá sem hafa hug á að stunda nám í heilsutengdum greinum, heilbrigðisgreinum, félagsgreinum og raungreinum og veitir það ákjósanlegan undirbúning fyrir tengd störf, svo sem við læknisfræði, hjúkrun, íþróttaþjálfun, kennslu og ráðgjöf. Nemendur geta í samráði við náms- og starfsráðgjafa skólans lagað kjörsviðsval sitt að inntökuskilyrðum þeirrar námsleiðar sem þau vilja feta í áframhaldandi námi.
Grunnur (99 einingar)
*Nemendur verða að taka STÆ2A05 en eiga að velja á milli STÆ2B05 og STÆ2C05. Þeir sem ætla að taka STÆ3A05 og hærri áfanga þurfa að velja STÆ2B05. Þau sem ætla að taka STÆ3D05 (tölfræði 2) velja STÆ2C05.
Kjarni íþróttaakademíu (25 einingar)
Kjarni heilsu- lífsstílsbrautar (36 einingar)
Bundið pakkaval (20 einingar)
Kjörsvið heilsu- og lífsstílsbrautar (25 einingar)**
Nemendur velja kjörsvið í samræmi við þá braut sem þeir eru á. Hægt er að velja hvenær áfangar af kjörsviðum eru teknir, en gæta þarf þess að byrja ekki of seint á námstímanum að taka þá áfanga.
**Nemendum í íþróttaakademíu er ráðlagt að kynna sér vel inntökuskilyrði viðtökuskóla (háskóla). Nauðsynlegt getur reynst að bæta við einingum/áföngum á kjörsviði í einstöku greinum til að uppfylla þau.
Uppfært: 12/08/2024