Vélvirkjun
Markmið náms í vélvirkjun er að gera nemendum kleift að takast á við þau viðfangsefni sem vélvirkjar inna af hendi, þ.e. uppsetningu, viðhaldi, viðgerðum og þjónustu véla og tæknibúnaðar skipa, vinnslustöðva, vinnuvéla, verksmiðja, orkuvera og orkuveitna. Náminu lýkur með sveinsprófi er veitir rétt til starfa við vélvirkjun og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.
Nemendur geta lokið þeim hluta námsins sem kenndur er í skóla (160 einingum) á þremur námsárum. Að þeim tíma loknum tekur við starfþjálfun á vinnumarkaði sem metin er til 45 eininga. Loks er gert ráð fyrir að nemendur taki sveinspróf í vélvirkjun.
Nemendur geta útskrifast að loknu starfsnámi eða að loknu starfsnámi og stúdentsprófi. Þeir áfangar sem bætast við upp í stúdentsprófið eru neðst á síðunni undir kaflanum Viðbótarnám til stúdentsprófs.
Kjarni
*Nemendur með A, B eða hærra en 7,0 í grunnskólaeinkunn þurfa ekki að taka þennan áfanga.
**Nemendur með A, B eða hærra en 7.0 í grunnskólaeinkunn í stærðfræði eða hafa lokið STÆ1A05 þurfa ekki að taka þennan áfanga.
***Nemendur þurfa að taka tvær einingar í íþróttum til viðbótar við þær sem eru í kjarna. Nemendur geta valið á milli eftirfarandi áfanga: RÆK1A01 – ræktin, JÓG1A01 – jóga, KÖR1A01 – körfubolti, FÓT1A01 – fótbolti og ÚTI1A01 – útivist. Velja má hvern þessara áfanga oftar en einu sinni og velja má fleiri en einn áfanga á önn.
Sérgreinar
Bundið áfangaval
5 einingar af 15
Fag | Þrep 1 | Þrep 2 | Þrep 3 | Þrep 4 |
---|---|---|---|---|
Rennismíði | REN2A05 | |||
Tölvustýrðar vélar | CNC3A05 | |||
Tölvuteikning, autocad | TTÖ2A05 |
Viðbótarnám til stúdentsprófs
Nemendur sem ætla að útskrifast með viðbótarnám til stúdentsprófs þurfa að taka eftirfarandi:
Kjarni
Nemendur þurfa að taka alla áfangana í kjarna.
Bundið áfangaval
Nemendur velja 5 einingar í ensku og/eða stærðfræði.
Nemendur velja annað hvort félagsfræði, náttúrufræði eða sögu sem viðbót (5 einingar).
Frjálst val
Nemendur nýta frjálst val til þess að fylla upp í þær 200 einingar sem þarf til stúdentsprófs. Athugið að einingar á 1. þrepi mega að hámarki vera 66, einingar á 2. þrepi mega að hámarki vera 100 og einingar á 3. þrepi þurfa að vera að lágmarki 34.
Uppfært: 05/02/2024